Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Tryggjum rétt íbúa til áhrifa á skipulag

útimarkaður21

Eitt helsta ágreiningsefni samtímans er án efa skipulagsmál. Ein af ástæðunum er vafalítið tæknilegs eðlis, þ.e. hvernig sveitarfélög á Íslandi standa að samráði við íbúa og samtök. Til þess að þoka þessum málum úr augljóslega ófrjóum jarðvegi þarf aðgerðir sem að mati Varmársamtakanna gætu falist í því að aðkoma íbúa og umhverfissamtaka að vinnu við aðalskipulag verði í framtíðinni með beinum hætti.

Tillaga Varmársamtakanna kveður á um að stofnaður verði vettvangur skoðanaskipta, nokkurs konar skipulagsráð, sem hefði með höndum að móta tillögur að skipulagi og þróa áfram þar til samkomulagi er náð í hópnum. Í ráðinu ættu sæti fulltrúar mismunandi hagsmunahópa allt eftir því hvert viðfangsefnið er hverju sinni, þ.e. hvaða svæði er verið að skipuleggja. Ákveðinn kjarni sæti ávallt í ráðinu s.s. fulltrúar sveitarfélagsins, íbúa- og umhverfissamtaka og hagsmunaaðila, auk fagaðila á sviði skipulags, verkfræði og byggingarlistar. Aðrir fulltrúar tækju sæti eftir því sem við á s.s. fagaðilar á sviði lýðheilsu, menningar- og náttúrufræða, jarðvísinda, samgangna, lögfræði o.s.frv. Tilgangur samráðsins væri að virkja sem flesta til þátttöku í verkefnum sveitarfélagsins, stuðla að velferð og móta umhverfi sem samsvarar hugmyndum og þörfum þess fólks sem þar býr. Þótt viðkomandi sveitarfélag færi með endanlegt ákvörðunarvald, og fagaðilar hefðu leiðbeinandi hlutverk, starfaði samráðshópurinn á grundvelli jafnréttis. Skipulagsráð hefði að leiðarljósi að leita sameiginlegra úrlausna og sætta ólík sjónarmið. Afrakstur víðtæks samráðs væri betra skipulag, minni ágreiningur og ánægðari íbúar. Fyrirmynd af slíkum samráðshópum er t.d. að finna á Norðurlöndum og víðar.

Við sem áhuga höfum á skipulagsmálum vitum að það fer eftir vilja þess sveitarstjórnarmeirihluta,sem er við völd hverju sinni, hvort íbúar fá að hafa áhrif á skipulagsvinnu. Þau vinnubrögð sem víða tíðkast á Íslandi, að íbúar komi einvörðungu að skipulagi í formi bréfaskipta, tilviljanakenndra skoðanakannana eða athugasemda á opinberum mannamótum teljum við með öllu ófullnægjandi og stangast á við markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun en aðgerðaáætlunin gerir ráð fyrir virkri þátttöku almennings í mótun samfélagsins. Virk þátttaka felur í sér persónuleg samskipti, þ.e. skoðanaskipti sem eru til þess fallin að kveikja áhuga almennings á þátttöku í samfélagslegum verkefnum. Sé það reglan, eins og oft er, að vinnan sem íbúar leggja af mörkum sé virt að vettugi af sveitarstjórnum er ekki hægt að búast við öðru en að íbúar missi áhugann á að vinna að málefnum sveitarfélagsins. Til að bæta úr þessu þarf að tryggja rétt íbúasamtaka til áhrifa eða eins og að ofan greinir að tryggja þeim rétt til beinnar þátttöku í sjálfuskipulagsferlinu.

Það er mat Varmársamtakanna að verktakar sem aðeins eiga fjárhagslegra hagsmuna að gæta eigi ekki heima í samráðshópum um mótun byggðar. Ennfremur, og í ljósi þeirra hörmunga sem verktakaveldið hefur kallað yfir byggðir landsins á undanförnum árum, telja samtökin að breyta þurfi skipulagslögum á þann veg að einungis sveitarfélög, ekki einkaaðilar, hanni skipulag í ofangreindu samráði. Að skipulagsgerð lokinni gætu verktakar síðan tekið til óspilltra málanna.

Sigrún Pálsdóttir


Mosfellsbær innleiði siðareglur

Töluverð umræða hefur verið um siðferði og níðskrif á blogginu að undanförnu. Á dögunum sendi stjórn Varmársamtakanna inn erindi til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og bað hana að ávíta forseta bæjarstjórnar Karl Tómasson fyrir ósæmileg skrif á bloggi sínu. Bæjarstjórnin svaraði því til að það væri ekki á hennar valdsviði að taka á málinu enda notar Karl frítíma sinn til níðskrifanna.

Í Mosfellsbæ gilda engar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa frekar en víða annarsstaðar og í sveitarstjórnarlögum er hvergi minnst á siðferðilegar skyldur kjörinna fulltrúa gagnvart íbúum nema að því leyti er varðar afgreiðslu mála í stjórnsýslunni.

Það er áhyggjuefni að ekki séu gerðar siðferðiskröfur til þeirra sem gegna trúnaðarstörfum í samfélaginu. Varmársamtökin gera því að tillögu sinni að Mosfellsbær innleiði siðareglur í sína stjórnsýslu.

Úr svari bæjarráðs til samtakanna: 
„Á 951. fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 1. október 2009 var tekið fyrir tölvupósterindi Varmársamtakanna dags. 23.9.2009.
Eftir skoðun á erindinu er það niðurstaða bæjarráðs Mosfellsbæjar að það sé ekki innan valdamarka bæjarráðs né bæjarstjórnar að ávíta forseta bæjarstjórnar né setja hann af vegna framgöngu hans í bloggheimum eins og farið er fram á í erindinu.
Bæjarráð Mosfellsbæjar gerði því svohljóðandi bókun á ofangreindum fundi sínum:
Þar sem það er ekki á verksviði bæjarstjórnar Mosfellsbæjar að fjalla um erindið er því vísað frá stjórnsýslu bæjarins.
Þessi afgreiðsla bæjarráðs tilkynnist hér með.

Virðingarfyllst
f.h. bæjarráðs Mosfellsbæjar
...
framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs“

Í viðhengi eru þau gögn sem Varmársamtökin sendu bæjarstjórn Mosfellsbæjar.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband