Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
18.7.2007 | 14:10
Athugasemdir Varmársamtakanna við tillögu að deiliskipulagi Helgafellsbrautar og umhverfisskýrslu
Frestur til að gera athugasemdir við tillögu Mosfellsbæjar að deiliskipulagi tengibrautar úr Helgafellslandi um Álafosskvos að Vesturlandsvegi og umhverfisskýrslu rann út 12. júlí sl. Verkfræðistofan Alta vann skýrsluna í kjölfar ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að Mosfellsbæ bæri að vinna umhverfisskýrslu í tengslum við deiliskipulag tengibrautar um Álafosskvos.
Hér má lesa athugasemdirnar:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2007 | 22:48
Nýju fötin keisarans í Álafosskvos
Það fór ekki fram hjá neinum sem heimsótti óvænta útiskemmtun Varmársamtakanna í Álafosskvos í dag hvers virði fegurðin er. Kvosin skartaði sínu fegursta í veðurblíðunni og komu áheyrendur sér makindalega fyrir í gömlu leikhúsbrekkunni sem Sigurjón Pétursson á Álafossi lét útbúa fyrir áhorfendur sem sóttu leiksýningar í Kvosinni á fyrrihluta síðustu aldar.
Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari hófu dagskrána með duett eftir Beethoven. Bryndís Schram flutti þvínæst ævintýri H.C. Andersens, Nýju fötin keisarans, með fagmannlegum tilþrifum við undirleik Áshildar og trommuslátt Berglindar Björgúlfsdóttur. Trúbadorinn Mirra heillaði síðan áhorfendur með undurfagurri söngrödd og sömuleiðis Elín Ey sem sló botninn í dagskrána með afar hugljúfum tónum.
Þökkum við þessu frábæra listafólki fyrir óeigingjarnt framlag í þágu góðs málstaðar.
Hildur Margrétardóttir, myndlistarmaður, sem barist hefur hetjulegri baráttu fyrir verndun svæðisins, flutti einnig stutt erindi um gang mála. Birtist erindi hennar hér á blogginu á næstunni.
Við Álafoss er að finna eitthvert skemmtilegasta samspil sögulegrar byggðar og náttúru á höfuðborgarsvæðinu. Þessi samkoma var haldin til að minna á nauðsyn þess að varðveita þetta einstaka umhverfi.
Með uppákomunni vildum við ennfremur vekja athygli landsmanna á því að lögð hefur verið tengibraut um Álafosskvos án deiliskipulags sem þýðir að aðkoma bæjarbúa að skipulagstillögunni verður einungis til málamynda. Þessum vinnubrögðum viljum við mótmæla, um leið og við hvetjum landann til að beita í ennfrekara mæli áhrifamætti sínum og stuðla þannig að lýðræðislegum stjórnarháttum í stjórnkerfinu í framtíðinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.7.2007 kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- laugardalur
- valgerdurhalldorsdottir
- omarragnarsson
- gbo
- graenanetid
- torfusamtokin
- landvernd
- veffari
- ingibjorgstefans
- hlynurh
- ingibjorgelsa
- ibb
- bustadahverfi
- sylviam
- vefritid
- annalilja
- hildurhelgas
- tbs
- bergursig
- hlidar
- salvor
- malacai
- stebbifr
- bjarnihardar
- gattin
- harring
- baldvinj
- kreppan
- thorsaari
- johannbj
- larahanna
Myndaalbúm
Tenglar
Álafosskvos
Starfsemi í Álafosskvos
- Sigur Rós Hljómsveit
- Álafossbúðin Verslun með listmuni, ullarvörur og fleira
- Ásgarður Handverksverkstæði
- Dieter Roth akademían Listaakademía
- Hildur Margrétardóttir Myndlistarkona
- Marisa Navarro Arason Ljósmyndari
- Myndlistarskóli Mosfellsbæjar Myndlistarskóli fyrir börn og fullorðna
- Ólöf Oddgeirsdóttir Myndlistarkona
- Palli hnífur Hnífagerðarmaður
- Valgerður Bergsdóttir Myndlistarkona
Úr fjölmiðlum
Þættir og fréttir um okkar mál.
- Viðtal við SP á mbl.is
- Mbl.is 8.3.'07 Úrskurður skipulagsstofnunar
- Gamla bloggið
- Kolfinna á InnTV - þáttur um skipulagsmál Rætt við Sigrúnu Pálsdóttur, VS og Valgerði Halldórsdóttur, Sól í Straumi
Náttúruvernd
Umhverfisvernd
ÍBÚINN - rit VS
Gott lesefni