Kynningarfundur um Álafosskvos

Kynningarfundur KvosMosfellsbær ætlar að halda fund um breytt deiliskipulag Álafosskvosar með íbúum og fasteignaeigendum nk. þriðjudag, kl. 16.30. Endurskoðun á skipulaginu hefur staðið yfir í nokkur ár. Ljóst var í upphafi uppbyggingar í Helgafellslandi að lagning Helgafellsvegar kallaði á miklar breytingar á skipulagi Kvosarinnar. Íbúar mótmæltu upphaflega veginum við endurskoðun á aðalskipulagi 2002. Var athugasemdunum þá vísað til seinni umræðu eða þar til kæmi að deiliskipulagningu svæðisins. Þegar til afgreiðslu á deiliskipulagi Helgafellsvegar kom 2006 og 2007 höfnuðu bæjaryfirvöld alfarið samvinnu við íbúa. Seinna þegar búið var að leggja veginn kom síðan fram að aðeins væri ein leið til að tengja Álafossveg við umheiminn, þ.e. með því að færa gatnamót Helgafellsvegar við Álafoss inn í Kvosina. Íbúar sátu því uppi með lélegt skipulag sem ekki var hægt að hafa nein áhrif á.

Allt frá því sl. vor hefur ríkt ófremdarástand við Álafosskvos þar sem ekki var gengið frá vegtengingu við Kvosina, heldur látið nægja að gera bráðabirgðatengingu sem skapaði mikla slysahættu og spillti ásýnd svæðisins.

Sl. ár hefur kynningarfundum fjölgað á vegum Mosfellsbæjar. Þessi nýbreytni er í sjálfu sér jákvæð en segir samt ekkert um áhrif íbúa á ákvarðanir bæjaryfirvalda í skipulagsmálum.  Tillögur íbúa hafa hingað til mætt umtalsverðri mótspyrnu hjá Mosfellsbæ. Óskandi væri að nýbreytnin þróist samt í þá átt að tillögur íbúa fái að njóta sín við gerð skipulags í framtíðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband