Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
16.1.2009 | 00:38
Kynningarfundur um Álafosskvos
Mosfellsbær ætlar að halda fund um breytt deiliskipulag Álafosskvosar með íbúum og fasteignaeigendum nk. þriðjudag, kl. 16.30. Endurskoðun á skipulaginu hefur staðið yfir í nokkur ár. Ljóst var í upphafi uppbyggingar í Helgafellslandi að lagning Helgafellsvegar kallaði á miklar breytingar á skipulagi Kvosarinnar. Íbúar mótmæltu upphaflega veginum við endurskoðun á aðalskipulagi 2002. Var athugasemdunum þá vísað til seinni umræðu eða þar til kæmi að deiliskipulagningu svæðisins. Þegar til afgreiðslu á deiliskipulagi Helgafellsvegar kom 2006 og 2007 höfnuðu bæjaryfirvöld alfarið samvinnu við íbúa. Seinna þegar búið var að leggja veginn kom síðan fram að aðeins væri ein leið til að tengja Álafossveg við umheiminn, þ.e. með því að færa gatnamót Helgafellsvegar við Álafoss inn í Kvosina. Íbúar sátu því uppi með lélegt skipulag sem ekki var hægt að hafa nein áhrif á.
Allt frá því sl. vor hefur ríkt ófremdarástand við Álafosskvos þar sem ekki var gengið frá vegtengingu við Kvosina, heldur látið nægja að gera bráðabirgðatengingu sem skapaði mikla slysahættu og spillti ásýnd svæðisins.
Sl. ár hefur kynningarfundum fjölgað á vegum Mosfellsbæjar. Þessi nýbreytni er í sjálfu sér jákvæð en segir samt ekkert um áhrif íbúa á ákvarðanir bæjaryfirvalda í skipulagsmálum. Tillögur íbúa hafa hingað til mætt umtalsverðri mótspyrnu hjá Mosfellsbæ. Óskandi væri að nýbreytnin þróist samt í þá átt að tillögur íbúa fái að njóta sín við gerð skipulags í framtíðinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 22:57
Helgafellsvegur lagður að nýju
Verktakar á vegum Mosfellsbæjar vinna nú við að taka upp Helgafellsveg. Vegna mistaka við lagningu tengibrautarinnar þarf að lækka veginn í landinu til að tengja hann við Álafosskvos.
Íbúar í Álafosskvos hafa um langt skeið beðið eftir frágangi á vegtengingu við Kvosina. Vegna slysahættu verða sett upp umferðarljós á gatnamótum Helgafellsvegar og Álafosskvosar. Í stað slysahættu munu íbúar á svæðinu því þurfa að sætta sig við aukinn hávaða frá umferð og loftmengun vegna kyrrstöðu bíla við ljósin.
Íbúar fóru í upphafi fram á að skipulög Álafosskvosar og Helgafellsvegar væru unnin samhliða. Því hafnaði Mosfellsbær með þeim afleiðingum að leggja þarf veginn að nýju.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 13:54
Fólk í Fílabeinsturnum ekki gefið góða raun
Varmársamtökin óska félögum og öðrum landsmönnum gleðilegs árs og þakka fyrir uppbyggileg samskipti á liðnu ári. Atburðir síðasta árs hafa fært okkur heim sanninn fyrir því að við þurfum að efla lýðræði og taka virkan þátt í mótun samfélagsins. Stjórnviska fólks í fílabeinsturnum hefur ekki gefið góða raun. Okkar áramótaheit er því að halda uppi málefnalegri umræðu um skipulags- og umhverfismál á komandi ári og vera áfram virk í að móta nýtt og betra samfélag.
Þeir sem óska eftir að skrá sig í samtökin sendi póst á varmarsamtokin@gmail.com
Bloggvinir
- laugardalur
- valgerdurhalldorsdottir
- omarragnarsson
- gbo
- graenanetid
- torfusamtokin
- landvernd
- veffari
- ingibjorgstefans
- hlynurh
- ingibjorgelsa
- ibb
- bustadahverfi
- sylviam
- vefritid
- annalilja
- hildurhelgas
- tbs
- bergursig
- hlidar
- salvor
- malacai
- stebbifr
- bjarnihardar
- gattin
- harring
- baldvinj
- kreppan
- thorsaari
- johannbj
- larahanna
Myndaalbúm
Tenglar
Álafosskvos
Starfsemi í Álafosskvos
- Sigur Rós Hljómsveit
- Álafossbúðin Verslun með listmuni, ullarvörur og fleira
- Ásgarður Handverksverkstæði
- Dieter Roth akademían Listaakademía
- Hildur Margrétardóttir Myndlistarkona
- Marisa Navarro Arason Ljósmyndari
- Myndlistarskóli Mosfellsbæjar Myndlistarskóli fyrir börn og fullorðna
- Ólöf Oddgeirsdóttir Myndlistarkona
- Palli hnífur Hnífagerðarmaður
- Valgerður Bergsdóttir Myndlistarkona
Úr fjölmiðlum
Þættir og fréttir um okkar mál.
- Viðtal við SP á mbl.is
- Mbl.is 8.3.'07 Úrskurður skipulagsstofnunar
- Gamla bloggið
- Kolfinna á InnTV - þáttur um skipulagsmál Rætt við Sigrúnu Pálsdóttur, VS og Valgerði Halldórsdóttur, Sól í Straumi
Náttúruvernd
Umhverfisvernd
ÍBÚINN - rit VS
Gott lesefni