Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
30.11.2007 | 13:16
Kjósum við lýðræði eða einhliða túlkun Bjarka Bjarnasonar?
- Í texta Bjarka segir að stjórnin hafi setið "að stærstum hluta óbreytt og án endurkjörs í tvö stjórnartímabil". Rétt er að tveir stjórnarmeðlimir af fimm hafa komið nýir inn síðan á stofnfundi fyrir einu og hálfu ári. Hér er látið í veðri vaka að maðkur sé í mysunni en mér er spurn: Hvað er óeðlilegt við að ekki hafi orðið meiri breytingar á stjórninni á ekki lengra tímabili?
- Í lögum samtakanna er ákveðin mótsögn sem fundurinn taldi nauðsynlegt að leiðrétta. Bjarki vildi horfa fram hjá því ákvæði að hver stjórnarmaður væri kosinn til tveggja ára og fór fram á að tveir stjórnarmenn vikju sæti skv. útskiptingarreglu sem stangast á við tveggja ára regluna. Fundurinn ákváð hins vegar að halda frekar framhaldsaðalfund þar sem borin yrði upp tillaga um leiðréttingu á lögunum. Fundurinn var vel sóttur og kaus mikill meirihluti fundarmanna að framhaldsaðalfundur skyldi haldinn í vor. Það var því lýðræðisleg ákvörðun fundargesta að tímasetja næsta fund í vor eða um það leyti sem stjórnin verður búin að sitja í tvö ár. Og mér er aftur spurn: Hvað er lýðræðislegra en að fara eftir niðurstöðu kosningar?
- Í grein Bjarka segir að drjúgur hluti aðalfundarins hafi farið í "að ræða túlkun á fyrrnefndri lagagrein en þessi mál hefðu að sjálfsögðu þurft að vera ljós fyrir fundinn". Bjarki fékk að eigin ósk send lög Varmársamtakanna sl. vor og átti því þess kost að leggja til a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund að lögunum yrði breytt en það gerði hann ekki. Aftur gefur hann í skyn að maðkur sé hér í mysunni en rétt er að hann hefði átt að hugsa út í þetta sjálfur í stað þess að vera ákveðinn í að túlka bæri lögin eins og honum sjálfum hentaði best.
- Og Bjarki heldur áfram: "Í fundarboði hafði verið auglýst eftir áhugasömu fólki í stjórn og höfðu nokkrir einstaklingar tilkynnt um framboð sitt. Þeir fengu ekki að kynna stefnumál sín á fundinum ... því stjórnarkjörið var einfaldlega blásið af." Hér er aftur látið í veðri vaka að stjórnin hafi gert sig seka um eitthvað misjafnt. Rétt er að enginn frambjóðandi fór fram á að kynna stefnumál sín á fundinum enda ekki skrýtið þar sem fundargestir tóku með kosningu þá ákvörðun að halda framhaldsaðalfund, þ.e. að kjósa ekki. Hefði hins vegar verið kosið hefði fólk að sjálfsögðu getað haldið sína stefnuræðu.
- "Lok fundarins urðu endaslepp, skoðunarmenn reikninga voru ekki kjörnir og orðið ekki gefið laust undir liðnum Önnur mál." Enn og aftur leikur Bjarki þann ljóta leik að gera okkur tortryggileg. Rétt er að þar sem ákveðið var að halda framhaldsaðalfund fór ekki fram nein kosning, önnur en að kjósa fólk úr hópi fundargesta til að endurskoða lögin. Mest allur tími fundarins fór í umræður sem Bjarki tók mikinn þátt í. Skv. mínum skilningi heyrðu þær undir liðinn "Önnur mál".
Tillögur og sanngjörn gagnrýni sem miðar að því að bæta lög og starfsvenjur samtakanna væru af hinu góða. Málflutningur Bjarka í Mosfellingi kemur aftur á móti í veg fyrir heilbrigða umræðu og er síst til þess fallinn að tryggja farsælt samstarf - enda kannski aldrei staðið til eða hvað?
Sigrún Pálsdóttir
stjórnarmaður í Varmársamtökunum
* Ritstjóri Mosfellings hringdi og sagðist ekki hafa fengið frétt frá okkur um aðalfundinn. Engin tilkynning barst um að þeir tveir póstar sem við sendum blaðinu hefðu ekki skilað sér sem er mjög óvenjulegt en auðvitað getur allt gerst og efast ég ekki um að það sé rétt að pósturinn hafi ekki borist.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.12.2007 kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 08:57
Ráðstefna um íbúalýðræði í HÍ í dag
Áhugafólk um lýðræði, íbúalýðræði og félagsauð ekki missa af þessu. Gerry Stoker hefur sett fram áhugaverðar kenningar um þátttöku í stjórnun sveitarfélaga hvetjum alla til að mæta!!!!!!!!!!!
Ráðstefnan er haldin á vegum Háskóla Íslands og stendur frá kl. 15.05-16.45 Odda, stofu 101. Boðið er upp á veitingar að lokinni dagskrá.
Boðskortið er einnig hér: http://www.felags.hi.is/page/stofnun_bod_afmaeli
Þátttaka tilkynnist á http://stjornsyslustofnun.hi.is/page/afmaelisradstefna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2007 | 09:44
Viðburðaríkt starfsár að baki hjá Varmársamtökunum
Aðalfundur Varmársamtakanna var haldinn í Varmárskóla á mánudagskvöld. Í upphafi fundar flutti Berglind Björgúlfsdóttir formaður samtakanna skýrslu stjórnar. Fór hún yfir helstu þætti í starfinu á árinu sem hefur verið viðburðaríkt. Sagði Berglind að eðli málsins samkvæmt hefði aðaláherslan verið á þau umferðarmannvirki sem eru í farvatninu á Varmársvæðinu. Hefðu samtökin bæði gert athugasemdir við deiliskipulagstillögur og íbúar þurft að senda inn kærur vegna ámælisverðra vinnubragða skipulagsyfirvalda og framkvæmdaaðila í Mosfellsbæ.
Margt ánægjulegt gerðist í starfi Varmársamtakanna á árinu. Tónleikar í Verinu 18. febrúar sl. standa þó upp úr en þar stigu á stokk hljómsveitirnar Sigur Rós, Amiina, Benni HemmHemm, Pétur Ben, Bógómil Font og Flís. Einnig komu fram þau Árni Matthíasson, Bryndís Schram, Una Hildardóttir, Steindór í Ásgarði, Steindór Andersen og Sigurður dýralæknir. Er skemmst frá því að segja að allt þetta frábæra listafólk og skemmtikraftar, að ógleymdum kvikmyndargerðarmönnum sem tóku upp tónleikana og eiganda hússins sem krafðist engrar leigu, gaf sína vinnu og rann allur ágóði af tónleikunum til Varmársamtakanna sem eru afar þakklát þessu heiðursfólki fyrir ómetanlegan stuðning.
Önnur skemmtileg uppákoma var undirbúin með litlum fyrirvara í Álafosskvos 1. júlí en þar flutti Bryndís Schram ævintýri Hans C. Andersen: Nýju fötin keisarans með leikrænum tilburðum við undirleik Áshildar Haraldsdóttur flautuleikara og Bryndísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara en þær fluttu einnig nokkur lög fyrir gesti. Trúbadorarnir Elín Ey og Mirra slógu botninn í dagskrána með afar hugljúfum tónum. Hildur Margrétardóttir myndlistarmaður flutti erindi dagsins en það fjallaði um vandamálin sem uppi eru í samskiptum bæjaryfirvalda við íbúa.
Berglind sagði einnig frá útimarkaði í Álafosskvos sem Sigríður Þóra Árdal og Guðrún Ólafsdóttir skipulögðu í tengslum við hátíðina Í túninu heima. Mikill fjöldi ungra sjálfboðaliða lagði hönd á plóginn á markaðsdaginn og var margt um manninn í Kvosinni.
Á árinu stóðu Varmársamtökin ennfremur fyrir ýmiskonar fræðsludagskrá fyrir íbúa um umhverfis- og skipulagsmál og fyrsta tölublað ÍBÚANS, fréttarits samtakanna um íbúalýðræði, náttúru og sögu, leit dagsins ljós.
Gert hafði verið ráð fyrir breytingum á stjórn samtakanna á aðalfundinum en vegna óvissu um túlkun 4. gr. laganna var ákveðið að halda framhaldsaðalfund með vorinu. Skipaði fundurinn sérstaka laganefnd úr röðum félagsmanna sem ætlað er að gera tillögur að endurbótum fyrir fundinn í vor.
Viðbót:
Sú mótsögn er í 4. gr. laganna að stjórnarmenn eru annars vegar kosnir til tveggja ára í senn og hins vegar er útskiptingarregla sem segir að tveir stjórnarmenn skuli kosnir á oddatölu og þrír á sléttri tölu.. Varmársamtökin voru stofnuð í maí 2006 og hefur því enginn stjórnarmaður setið í stjórn í tvö ár.
Þessi ákvæði ásamt öðrum þarf því að skoða og leggja til lagabreytingar fyrir framhaldsaðalfund.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.11.2007 kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 09:37
Bréf frá Andalúsíu - um umhverfismál
Öll austurströnd Spánar, allt frá Benidorm, (Litlu Manhattan, eins og það heitir hér) og alla leið til Marbella á Costa del Sol, (eitt versta dæmið um byggingamistök)- er eitt allsherjar umhverfisslys - eða eins og Spánverjar sjálfir lýsa því núorðið: Umhverfisglæpur.
Aðalumræðuefnið á Spáni um þessar mundir er einmitt, hvernig eigi að bæta fyrir þau slys í umhverfinu, sem þegar hafa orðið. Hvernig eigi að bjarga strandlengjunni frá norðri til suðurs og fara að þeim lögum, sem sett voru árið 1988 um náttúruvernd og aðgengi almennings. Þessi lög virðast hafa gleymst í byggingaræði undanfarinna ára.
Fjárfestar og byggingaverktakar hafa vaðið yfir landið með gröfur, kranabíla og jarðýtur, byggt og byggt í þeirri von að græða meira og meira á sólþyrstum túrhestum. Þeir hafa ekki kunnað sér hóf og eru búnir að byggja langt umfram eftirspurn. Enginn sér fyrir endann á þeim ósköpum enn.
Framkvæmd þessara laga virðist hafa verið að mestu leyti í höndum sveitarfélaga og héraðsstjórna. Sveitarfélögin - hér sem annars staðar (og þetta þekkjum við heima á Íslandi) - liggja undir stöðugum þrýstingi og ásælni fjárfesta og verktaka um að gefa þeim lausan tauminn til framkvæmda. Skammtímagróði - einn og sér hefur ráðið för. Afleiðingarnar blasa nú við í því, sem farið er að kalla eyðileggingu, spillingu , glæpastarfsemi. Spánverjar þekkja varla landið sitt lengur.
Í El Pais og öðrum alvörufjölmiðlum má lesa dag eftir dag myndskreyttar greinar eftir stjórnmálamenn, skipulagsarkitekta, umhverfissérfræðinga og aðra, sem láta sig þessi mál varða. Þeir eru allir á einu máli um, að aðgerða sé þörf, og það strax. Almenningur unir því ekki lengur að vera sviptur aðgengi að strönd og hafi, eins og lög kveða á um, að þeir eigi. Og inn í alla þessa umræðu spinnst svo óttinn við hækkun sjávar á næstu áratugum vegna ofhitunar jarðar. Það er ekki lengur spurning um hvort það verður, heldur hvenær, segja þeir. Og þá eru margar byggingar í hættu.
Nú eru jafnaðarmenn aftur við völd hér á Spáni og vilja halda áfram þaðan, sem frá var horfið. Þeir leggja áherslu á að framfylgja lögunum frá 1988. Hreinsa upp strendurnar, leyfa náttúrunni að njóta sín, tryggja aðgengi almennings og byggja hús, sem kallast á við stórbrotna náttúruna, en traðka ekki á henni, eins og nú er.
Draumurinn um hina eilífu sælu sólarstranda hefur breyst í martröð. - Hótel, lúxusvillur, verslanir og veitingastaðir troða sér fram á ystu brún og hamla frjálsu aðgengi hins almenna borgara. Sportbátaeigendur eru búnir að leggja undir sig heilu strandlengjurnar og fæla frá fiskimennina, sem einu sinni lögðu þarna upp með afla sinn. Það er rætt um það núna í fullri alvöru að setja sprengjur undir allt heila klabbið. Byrjum upp á nýtt, segja þeir.
Þetta verður auðvitað heitt mál í komandi kosningum í Mars 2008. Og þá er bara að sjá, hvort kjósendur veita þessum róttækum aðgerðum jafnaðarmanna brautargengi - eða leyfa íhaldinu að halda áfram að valta yfir landið.
Bryndís
16.11.2007 | 23:02
Íbúinn - rit um íbúalýðræði og umhverfismál
ÍBÚINN, rit Varmársamtakanna um íbúalýðræði, náttúruvernd, skipulag og sögu hefur nú litið dagsins ljós og verður borið í hús í Mosfellsbæ um helgina.
Í blaðinu er fjallað um sögu Álafoss, hitaveituna, nýtt miðbæjarskipulag í Reykjavík o.fl., o.fl.
Þeir sem vilja fá blaðið sent geta snúið sér til: varmarsamtokin@gmail.com og gefið upp nafn og heimilisfang. Hægt er að skoða ÍBÚANN með því að smella á skrána fyrir neðan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.11.2007 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2007 | 15:50
Aðalfundur Varmársamtakanna í Varmárskóla 19. nóvember
Aðalfundur Varmársamtakanna verður haldinn í Varmárskóla í Mosfellsbæ 19. nóvember kl. 20.15. Fundarefni er venjuleg aðalfundarstörf.
Varmársamtökin voru stofnuð á fjölmennum fundi í Þrúðvangi í Álafosskvos 8. maí 2006. Samtökin hafa að markmiði að efla íbúalýðræði og stuðla að samvinnu íbúa um framtíðarmótun Varmársvæðisins. Áherslur samtakanna eru í takt við þá umhverfisverndarstefnu sem segir frá í aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024:
Leggja skal áherslu á varðveislu óspilltrar náttúru, friðlýsingu athyglisverðra svæða og tengsl byggðar við náttúrulegt umhverfi. Bærinn verði útivistarbær þar sem íbúar eru í snertingu við náttúruna á auðveldan og fjölbreyttan hátt ... .
Markmið Varmársamtakanna:
- standa vörð um Varmársvæðið frá upptökum til ósa
- efla íbúalýðræði og stuðla að auknum áhrifum íbúa í skipulags- og umhverfismálum
- stuðla að uppbyggingu útivistar- og íþróttasvæða við Varmá í sátt við náttúrulegt umhverfi
- lífga upp á bæjarlífið í Mosó með útimörkuðum, skemmtunum og menningarviðburðum.
Í stjórn Varmársamtakanna blása ferskir vindar og leitum við því að fersku fólki í stjórn sem vinna vill af alúð og áhuga að málefnum samtakanna. Tilkynna verður framboð a.m.k. sólarhring fyrir aðalfund.
Allir velkomnir!
Stjórnin
Netfang: varmarsamtokin@gmail.com
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.11.2007 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2007 | 10:56
Náttúran og nærumhverfið - ráðstefna
Bloggvinir
- laugardalur
- valgerdurhalldorsdottir
- omarragnarsson
- gbo
- graenanetid
- torfusamtokin
- landvernd
- veffari
- ingibjorgstefans
- hlynurh
- ingibjorgelsa
- ibb
- bustadahverfi
- sylviam
- vefritid
- annalilja
- hildurhelgas
- tbs
- bergursig
- hlidar
- salvor
- malacai
- stebbifr
- bjarnihardar
- gattin
- harring
- baldvinj
- kreppan
- thorsaari
- johannbj
- larahanna
Myndaalbúm
Tenglar
Álafosskvos
Starfsemi í Álafosskvos
- Sigur Rós Hljómsveit
- Álafossbúðin Verslun með listmuni, ullarvörur og fleira
- Ásgarður Handverksverkstæði
- Dieter Roth akademían Listaakademía
- Hildur Margrétardóttir Myndlistarkona
- Marisa Navarro Arason Ljósmyndari
- Myndlistarskóli Mosfellsbæjar Myndlistarskóli fyrir börn og fullorðna
- Ólöf Oddgeirsdóttir Myndlistarkona
- Palli hnífur Hnífagerðarmaður
- Valgerður Bergsdóttir Myndlistarkona
Úr fjölmiðlum
Þættir og fréttir um okkar mál.
- Viðtal við SP á mbl.is
- Mbl.is 8.3.'07 Úrskurður skipulagsstofnunar
- Gamla bloggið
- Kolfinna á InnTV - þáttur um skipulagsmál Rætt við Sigrúnu Pálsdóttur, VS og Valgerði Halldórsdóttur, Sól í Straumi
Náttúruvernd
Umhverfisvernd
ÍBÚINN - rit VS
Gott lesefni